Tuesday, April 29, 2008


Þetta er hornið sem ég saumaði í RR sem ég á, þetta er púði og ég sendi hann svo til Frakklands, þaðan fór hann til tveggja kvenna í Bandaríkjunum og nú bíð ég eftir að fá hann aftur. Hornin eru öll svona og svo er ég að pæla í að breyta miðjunni, þar á að standa eitthvað um vináttu.










Þetta er Hush Puppy frá Stoney Creek sem ég saumaði í vegg mynd (RR) fyrir vinkonu mína í Bandaríkjunum. Það var hryllingur að sauma hann (svo mikið af hálfsporum og hlutasporum ) en þau gera hann svo flottan og lifandi. Ég er mjög ánægð með hann þennann.











Þetta er svo horn sem ég saumaði í RR mynd fyrir aðra konu í Bandaríkjunum, myndin heitir The Kiss og er frá Vermillion. Það var algjör hryllingur að sauma þetta, svo mikið um litaskipti og ljósritið af munstrinu sem hún sendi með var svo óskýrt að varla var hægt að sjá hvar maður átti að gera afturstinginn.

No comments: