Þetta er hornið sem ég saumaði í RR sem ég á, þetta er púði og ég sendi hann svo til Frakklands, þaðan fór hann til tveggja kvenna í Bandaríkjunum og nú bíð ég eftir að fá hann aftur. Hornin eru öll svona og svo er ég að pæla í að breyta miðjunni, þar á að standa eitthvað um vináttu.
Þetta er Hush Puppy frá Stoney Creek sem ég saumaði í vegg mynd (RR) fyrir vinkonu mína í Bandaríkjunum. Það var hryllingur að sauma hann (svo mikið af hálfsporum og hlutasporum ) en þau gera hann svo flottan og lifandi. Ég er mjög ánægð með hann þennann.