Wednesday, March 2, 2022

Starting over.  March 2. 2022.

Thursday, April 22, 2010

OOh my.

I just discovered this long lost blog of mine. Perhaps I´d better do something in here, post pictures and so on.. Today is Icelands first day of summer and it greeted us with snow this morning. This is supposed to be a good sign, if there is frost at midnight it will be a good summer. This is called; when winter and summer freeze together. I do hope this will be true. This first day of summer is vacation day in school and tomorrow is also off for them so they can rest and drive me crazy. Again...

more later.

Tuesday, April 29, 2008


Þetta er hornið sem ég saumaði í RR sem ég á, þetta er púði og ég sendi hann svo til Frakklands, þaðan fór hann til tveggja kvenna í Bandaríkjunum og nú bíð ég eftir að fá hann aftur. Hornin eru öll svona og svo er ég að pæla í að breyta miðjunni, þar á að standa eitthvað um vináttu.










Þetta er Hush Puppy frá Stoney Creek sem ég saumaði í vegg mynd (RR) fyrir vinkonu mína í Bandaríkjunum. Það var hryllingur að sauma hann (svo mikið af hálfsporum og hlutasporum ) en þau gera hann svo flottan og lifandi. Ég er mjög ánægð með hann þennann.











Þetta er svo horn sem ég saumaði í RR mynd fyrir aðra konu í Bandaríkjunum, myndin heitir The Kiss og er frá Vermillion. Það var algjör hryllingur að sauma þetta, svo mikið um litaskipti og ljósritið af munstrinu sem hún sendi með var svo óskýrt að varla var hægt að sjá hvar maður átti að gera afturstinginn.
Hér er skærabudda / hálsmen frá Mill Hill, allt útsaumað með perlum.


Þessi er í seríu af 6 Feng Shui myndum, ég ákvað að íslenska ekki Eternity þar sem á sumum hinna myndanna er ekki hægt að íslenska þetta og ég ætla að gera þær allar. Á hinum stendur Harmony, Love, Peace og svoleiðis eitthað. Á eftir að finna munstrin í safninu hjá mér.















Þetta er svona byrjanda pakkning frá DMC, gerði þetta nú bara af því að mér leiddist svo þennan daginn.

Hér er ég að hugsa um að blogga og bulla um handavinnu.